Almanak HÍ 2020
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Út er komið Almanak fyrir Ísland 2020 sem Háskóli Íslands gefur út. Þetta er 184. árgangur ritsins. Þorsteinn Sæmundsson stjörnufræðingur og Gunnlaugur Björnsson stjarneðlisfræðingur hjá Raunvísindastofnun Háskólans hafa samið og reiknað almanakið. Ritið er 96 bls. að stærð.
Auk dagatals flytur almanakið margvíslegar upplýsingar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyribærum á himni sem frá Íslandi sjást. Í almanakinu eru stjörnukort, kort sem sýnir áttavitastefnur á Íslandi og kort sem sýnir tímabelti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeimsins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Af nýju efni má nefna grein um sólgos og áhrif þeirra. Lýst er nýrri skilgreiningu á kílógramminu og fjallað um silfurský. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkisdaga nokkur ár fram í tímann.
Á heimasíðu almanaksins (almanak.hi.is) geta menn fundið ýmiss konar fróðleik til viðbótar, þar á meðal upplýsingar sem borist hafa eftir að almanakið fór í prentun.
Á sölusíðu almanaksins (almanak.is) geta menn nálgast almanakið á rafrænu formi.
- Blaðsíðufjöldi: 96
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.