Fléttur VI – Loftslagsvá og jafnrétti
Ritstjórar:
Upplýsingar
Fléttur VI. Loftslagsvá og jafnrétti er sjötta ritið í ritröð RIKK – Rannsóknastofnunar í jafnréttisfræðum. Í bókinni er fjallað um loftslagsvá út frá kynja- og jafnréttis- sjónarmiðum. Rýnt er í margþætt tengsl loftslagsbreytinga, kynjajafnréttis og samfélagslegs réttlætis með það að markmiði að stuðla að víðtækari skilningi á þessu stærsta viðfangsefni samtímans. Efnið er kannað bæði frá íslensku sjónarhorni og alþjóðlegu. Fjallað er um femínískra vistrýni og henni beitt í bókmenntagreiningu, dregnar eru fram raddir og sögur kvenna á ólíkum tímum og sjónum beint að loftslagskvíða. Enn fremur er femínískum greiningartækjum beitt til að greina tengsl loftslagsbreytinga við feðraveldi, nýlendustefnu, kapítalisma, stéttaskiptingu og kynþáttahyggju með sérstakri áherslu á samtvinnun.
- Útgáfuár: 2024
- Fag: Kynjafræði
- Blaðsíðufjöldi: 244
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.