Hugsandi skólastofa í stærðfræði – Bók fyrir kennara á öllum skólastigum

Höfundur: Peter Liljendahl

Þýðandi: Bjarnheiður Kristinsdóttir

Verknúmer: U202408

ISBN: 978-9935-23-331-8

7.900 kr. 6.900 kr.
lagerstaða: Til á lager

  • Útgáfuform

Upplýsingar

NEMENDUR SEM HUGSA TAKA VIRKAN ÞÁTT Í NÁMINU

Kennurum reynist oft erfitt að fá nemendur til að fara út fyrir ramma reiknileikniæfinga og utanbókar­ lærdóms. Stofnanabundin viðmið, venjur og hefðir hafa áhrif á það sem gerist í skólastofunni og geta hreinlega orðið til þess að nemendur vaða áfram hugsunarlaust og læra lítið á leiðinni. Peter Liljedahl varð vitni að erfiðleikum sem kennarar stóðu frammi fyrir þegar verðug verkefni og þrautir sem áttu að fá nemendur til að hugsa djúpt voru lögð fyrir í tímum. Þessi reynsla varð upphaf að 15 ára rannsóknartímabili sem lagði grunninn að þessari bók og miðaði að því að finna leiðir til að styðja kennara og nemendur í að skapa hugsandi skólastofu.

Hugsandi skólastofa í stærðfræði, bók fyrir kennara á öllum skólastigum hjálpar kennurum að innleiða 14 aðferðir sem reyndust vera best til þess fallnar að fá nemendur til að hugsa og taka virkan þátt í náminu. Hugsun og virk þátttaka eru grundvallarforsendur fyrir stærðfræðinámi sem ristir dýpra og gerir mögulegt að læra til skilnings. Þessi bók:

  • Gefur leiðbeiningar um hvað hver aðferð felur í sér, ástæðurnar sem liggja að baki, hvernig henni er beitt og svarar algengustu spurningum kennara sem henni tengjast.

  • Veitir innsýn í hvernig aðferðirnar stuðla að hugsun hjá nemendum með því að birta sögur úr skólastarfinu, viðtöl við kennara og nemendur og dæmi um vinnu nemenda.

  • Býður upp á gnægð hugmynda að verðugum verkefnum og yfirlit í lok hvers kafla yfir þær meginbreytingar og örbreytingar sem ráðast þarf í hverju sinni.

  • Raðar aðferðunum 14 í fjóra verkfærakassa sem byggja hver á öðrum, má innleiða skref fyrir skref og vinna með gegnum allt skólaárið.

    Aðferðirnar byggja á rannsóknum og þegar þeim er beitt skapast bestu mögulegu aðstæður fyrir stærðfræðilega hugsun og nám sem er í senn nemendamiðað og hvetur til sjálfstæðra vinnubragða. Þannig geta aðferðirnar umbylt stærðfræðikennslu.

,,Það verður til hvetjandi námsmenning í hugsandi skólastofu þar sem hugsun, samvinna og rökræða eru í fyrirrúmi. Þar lifnar skólastofan við og innri áhugahvöt nemenda blómstrar."

Nanna Dóra Ragnarsdóttir – Grunnskóla Hornafjarðar

,,Í hugsandi skólastofu lifnar hugsun nemenda við og dreifist um veggi stofunnar. Nemendur leika sér með stærðfræðina og fá rými til að hugsa, rökræða, gera mistök og læra af þeim. Kennarinn fylgist með og stýrir flæðinu. Peter Liljendahl gerir kennurum kleift að byggja upp hugsandi skólastofu með viðráðanlegum skrefum sem eru vel rökstudd með rannsóknum."

Eyþór Eiríksson – Menntaskólanum í Kópavogi

 

  • Fag: Stærðfræði, menntavísindi
  • Blaðsíðufjöldi: 314
  • Útgáfuár: 2025

Oops!

Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.

OK