Jónsbók - Lögbók Íslendinga hver samþykkt var á alþingi árið 1281 og endurnýjuð um miðja 14. öld en fyrst prentuð árið 1578
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Á alþingi sumarið 1281 var samþykkt ný lögbók fyrir Íslendinga sem unnin var að frumkvæði Magnúsar Hákonarsonar konungs. Bókin var snemma nefnd Jónsbók og segir til um flesta þætti íslensks samfélags. Lýst er þingsköpum, tekið á manndrápum, þjófnaði og öðrum afbrotum, tilgreindar erfðir karla sem kvenna og fjallað um samskipti leiguliða og jarðeigenda, búfjárbeit og verðlag, ásamt mörgu fleiru. Jónsbók var notuð í heild fram á 18. öld og enn er tíundi hluti hennar í gildi. Um miðja 14. öld var bókin endurskoðuð með hliðsjón af nýrri konungsúrskurðum. Í þessari bók birtist sá texti hennar sem eftir það var notaður við dóma og er algengastur í handritum, en birtist jafnframt í prentaðri útgáfu verksins árið 1578.
Í bókinni er að finna viðamikla atriðaorðaskrá sem auðvelda mun notkun
bókarinnar mikið.
- Fag: Sagnfræði
- Blaðsíðufjöldi: 393
- Útgáfuár: 2004
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.