Rannsóknir í viðskiptafræði I
Ritstjórar:
This product is not available in the selected currency.
Til á lager
Forpöntun
Uppselt
Upplýsingar
Viðskiptafræði er fjölbreytt fræðigrein innan félagsvísinda með margvísleg tengsl við aðrar greinar. Þessi bók, sem er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi, hefur að geyma niðurstöður ólíkra rannsókna sem endurspegla margbreytileika fræðigreinarinnar. Lesendur fá innsýn í viðamikinn fræðaheim sem spannar meðal annars nýsköpun, opinbera stjórnsýslu, mannauðsstjórnun, sjávarútveg, utanríkisþjónustu, stjórnun, iðnað, orku, verslun og þjónustu.
Í Rannsóknum í viðskiptafræði I leiða saman hesta sína fjölmargir kennarar Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands ásamt sérfræðingum úr atvinnulífinu. Allir kaflarnir eru byggðir á eigin rannsóknum höfunda og hafa verið ritrýndir. Þetta er fyrsta bókin í nýrri ritröð um rannsóknir í viðskiptafræði og á hún erindi við alla þá sem vilja kynna sér það efni, ekki síst stjórnendur fyrirtækja og hjá hinu opinbera. Bókin ætti einnig að höfða til nemenda í viðskiptafræði og tengdum greinum.
- Blaðsíðufjöldi: 300
- Fag: Viðskiptafræði
- Útgáfuár: 2020
Oops!
Við eigum ekki umbeðið magn til á lager, prófaðu minna magn.